Færsluflokkur: Bloggar

Söluverð Íslands!

Árið 1867 keyptu Bandaríkin Alaska af Rússakeisara fyrir 7,2 milljónir dollara sem greitt var fyrir í gulli.  Á þessum árum höfðu Bandaríkjamenn einnig keypt eyjarnar St. Thomas og St John af Dönum fyrir 7.5 milljónir dollara.  Danir hafa alltaf verið klárir kaupmenn!

Alaska er 1.5 milljón ferkílómetrar en eyjarnar tvær sem Danirnir seldu 132 ferkílómetrar.

William H. Seward ráðherra vildi líka kaupa Grænland og Ísland af dönum en var stoppaður af Bandaríska þinginu þar sem sumum þótti nú ekki vænlegt að eignast einhverar ísbreiður!

Með aðstoð Google og smá útreikningum m.v. dollaragengi á krónu í dag þá kemur þetta svona út ef kaupin væru gerð í dag:

Verð pr. ferkílómetra á Alaska kr. 7,7 milljónir

Verð pr. ferkílómetra á eyjunum tveim kr. 93,9 milljarðar já milljarðar!

Ef til væri kaupandi af 1 stk. eyju í norðri  sem væri svona um það bil 100.000 ferkílómetrar þá væri verðið ef við seldum á sama verði og Rússakeisari.

800 milljarðar

en ef við seldum á sama verði og danir!

9.671.700 milljarðar

Það eru svona 30 milljarðar á mann á Íslandi í dag!

 

 


mbl.is Íslendingar erlendis sýna áhuga á jarðakaupum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir mig!

Hef verið þeirrar ánægju aðnjótandi að lesa bækur eftir Tony Hillerman á undanförnum árum.  Nokkrar eftir enn!  Ákaflega skemmtilegar bækur.   Takk fyrir mig Tony.
mbl.is Kunnur spennusagnahöfundur látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábærar fréttir!

Ég þakka þeim þjóðum innilega sem kusu okkur ekki í öryggisráð SÞ.  Því miður var ekki hlustað á mig og aðra sem vildu alls ekki að við reyndum að fá sæti.  Því betur var haft vit fyrir okkur en kostnaðurinn við framboðið leggst á mig og þig!

Þetta auðveldar okkur sem eru á móti útþennslustefnu Utanríkisráðuneytis að koma málum okkar á framfæri.  Drögum úr þessu bulli og semjum við Dani um að sinna þjónustu fyrir okkur um allan heim.  Við það sparast mikill peningur.

 


mbl.is Ísland náði ekki kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Glitnir taki þátt í afskriftinni?

"Glitnir veitti ráðgjöf vegna kaupanna sem eru fjármögnuð með eigin fé og lánsfé. Kaupin eru liður í þeirri stefnu Eimskips að verða leiðandi aðili í hitastýrðum flutningum á alþjóðavísu. "
mbl.is Eimskip afskrifar Innovate
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband